Þekkingarmarkmið
Í lok námskeiðs hafa nemendur öðlast þekkingu á:
helstu kenningum um fjarnám og fjarkennslu
hvernig tengja má upplýsingatækni og netsamfélög við kenningar um nám og kennslu
mismunandi eiginleikum námsumhverfa á Netinu
þeim möguleikum sem felast í dreifðum og sveigjanlegum kennsluháttum, jafnt við einn skóla og í samvinnu milli skóla eða skólastiga
ýmsum hugbúnaði til skráningar og samskipta í skólasamfélaginu
virkni tölvu- og netkerfa og ýmsum öryggis- og álitamálum þar að lútandi.
Færnimarkmið
Í lok námskeiðs hafa nemendur öðlast færni í:
skipulagningu og uppsetningu náms- og kennsluumhverfa á Netinu
notkun á margs konar búnaði sem lýtur að margmiðlun í námsefnisgerð og miðlun á Netinu
að skipuleggja kennslu á Netinu
að nota upplýsingatækni og Netið í sveigjanlegu skólastarfi
að nýta tölvutæknina til að skipuleggja eigin vinnu
uppsetningu og notkun gagnagrunna.
Inntak / viðfangsefni
Nemendur kynnast helstu kenningum um fjarnám og fjarkennslu. Kynnt verða náms- og kennsluumhverfi á Netinu og hvernig hægt er að nýta þau í skólastarfi. Nemendur kynnast ýmsum búnaði sem notaður er í fjarkennslu og fjarnámi, netnámi í tengslum við staðnám, og til samvinnu. Áhersla verður lögð á að nemendur verði færir um að skipuleggja námsumhverfi á Netinu, fái sem gleggsta mynd af þeirri tækni sem á boðstólum og þeim möguleikum sem felast í dreifðum og sveigjanlegum náms- og kennsluháttum. Nemendur kynnast hugbúnaði sem notaður er í skólum til skráningar og hvernig upplýsingatæknin á þátt í að efla samstarf heimila og skóla. Nemendur setja upp gagnagrunn sem nýta má til öflunar/skráningar gagna og úrvinnslu. Fjallað verður um innviði tölvukerfa og öryggis- og siðferðismál á Netinu. Nemendur kynnast því hvernig nýta má tölvutæknina til að henda reiður á eigin gögnum og dagskipulagi.
Vinnulag
Námskeiðið fer fram í námsumhverfi á Netinu og er að mestu leyti með fjarkennslusniði. Nemendur vinna verkefni ýmist sem einstaklingar eða í litlum hópum.
Námsmat: Námsmat er tvíþætt, annars vegar próf og hins vegar verkefni.
Lesefni: Bækur, rannsóknarskýrslur, greinar og annað efni um viðfangsefni námskeiðsins.
Kjörsvið: Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs: Valnámskeið
Misseri: 3. misseri staðnám og 5. misseri fjarnám?
Einingar: 5
Hámarksfjöldi nemenda: Enginn
Forkröfur: Engar
Námskeiðslýsing